Hópur manna réðst harkalega á mann í miðborginni og flúði síðan af vettvangi. Fórnarlambið var verkjað um allan líkamann. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Bráðadeild. Lögreglan náði ekki árásarmönnunum.
Nóttin var róleg hjá lögreglu en talsvert um hefðbundin afbrot. Nokkrir ökumenn grunaðir um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður var stöðvaður með of marga farþega í bifreiðinni. Sjö ára barn sat án öryggibúnaðar, laust í fangi farþega í framsæti. Barnavernd umsvifalaust tilkynnt um athæfi hinna fullorðnu.
Tveir menn handteknir í hverfi 105 grunaðir um sölu. Mennirnir voru lokaðir inni í fangageymslu lögreglu.
Ökumaður á hraðferð á Reykjanesbraut þarf að greiða drjúgan hlut mánaðarlauna sinna í sekt auk þess að missa ökuréttindin. Hann reyndist vera á 137 kílómetra hraða og drukkinn í þokkabót.