Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að tugþúsundir Íslendinga komi til með að þurfa velja milli þess hvort það borgi skuldir eða versli í matinn. Strípaðar atvinnuleysisbætur séu það lágar að í haust blasi sá raunveruleiki við fjölda íslenskra heimila.
Í kringum 60 þúsund Íslendingar eru nú á atvinnuleysisskrá og segir Ragnar Þór mánaðarmótin vera þau verstu í sögu félagsins. „Staðan er skelfileg. Við erum að fá hópuppsagnir á færibandi,“ sagði Ragnar Þór í þættinum Vikulokunum á Rás 1.
Ragnar Þór segir að komi ekki til aðgerðir frá ríkisstjórninni verði haustið erfitt fyrir þennan fjölmenna hóp á strípuðum atvinnuleysisbótum. „Ætlum við að fara í raunverulegar aðgerðir eða ætlum við að láta þessa hópa þurfa að taka ákvörðun um það hvort það ætli að versla í matinn eða borga skuldir?“