Frá því greinir rannsóknarstofa Háskóla Íslands á sviði eldfjallafræða og náttúruvár, að verulegur hiti mælist í hraunbreiðunni eftir jarðeldana í og við Fagradalsfjall í ár sem og í fyrra.
Kemur fram að helst mælist hitinn næst gígunum; enda hraunið þykkast þar; allt að eitt hundrað metra þykkt í tilviki fyrra gossins: Um 35 metra þykkt nærri þeim gígum sem urðu til vegna gossins í lok síðasta sumars.
Þá deilir stofan korti á samfélagsmiðlinum Facebook, sem byggist á hitamælingum er gerðar voru á mánudaginn síðasta.
Þar segir að hár hiti komi á óvart í hrauninu; fremst í Nátthaganum, annars vegar, og suðaustast í Meradölum, hins vegar.
Varðandi hitann í Nátthaga þá stafar hann hugsanlega vegna þess að innri kjarni hraunsins hafi haldist nægilega heitur eftir að gosi lauk, til þess að ná að flæða fram og viðhalda hitanum allra fremst í Nátthaga.
Einnig að um svæðið suðaustast í Meradölum segir að þar hafi bráðin kvika úr kjarna þess hrauns sem rann árið 2021, brotist út um yfirborðssprungu í ágúst síðatliðnum vegna fergingar af nýju hraunbreiðunni.
Því er ljóst að þarna hefur skotist inn – og situr enn – verulegt magn af heitri kviku sem skýrir upplyftinguna sem varð á hraunyfirborðinu á þessu svæði samfara kvikuútflæðinu.“