Foreldar í Vesturbænum hafa spurt borgarstjórann í Reykjavík, Dag B. Eggertsson, að því hvort mögulegt sé að nýta Hótel Sögu undir skólastarfsemi í hverfinu. Í næsta húsi má finna Hagaskóla þar sem nemendur á unglinsaldri fá nú aðeins þriggja klukkustunda skóladag vegna hertra sóttvarnaraðgerða.
Hilmar Þór Norðfjörð, íbúi í Vesturbænum, stingur upp á því að hið tóma hótel verði nýtt til að bjóða unglingum hverfisins upp á fullan skóladag. Hann leggur þetta til í hverfishópi Vesturbæjar á Facebook og taggar þar borgarstjórann inn í umræðuna.
„Pæling með Hagaskóla. Bekkjum skipt upp og bara 3 tímar að dag. Næsta hús er Hótel Saga sem er lokað og ónotað. Afhverju ekki að fá afnot af sölum þar og hafa heila skóladaga? Krakkarnir vilja vera í skólanum, aldrei þessu vant. Ekkert mál að halda 2 metra reglu, allt til alls þar og hægt að hjálpa Hótel Sögu í leiðinni eitthvað. Just saying Dagur B. Eggertsson, hvernig líst þér á þetta?,“ segir Hilmar.

Fjölmargir íbúar og foreldar í Vesturbænum blanda sér í umræðuna. Flestir þeirra telja hugmyndina frábæra á meðan aðrir velta því upp hvort útfærslan sé raunhæf sökum kennaraskorts.
Aðalheiður Jónsdóttir er ein þeirra sem hrífst af hugmyndinni. „Elska þegar fólk fær svona frábærar #outofthebox hugmyndir,“ segir Aðalheiður. Drífa Magnúsdóttir er líka hrifin. „Frábær hugmynd. Þetta kallast að hugsa í lausnum,“ segir Drífa.
Erna Svala Ragnarsdóttir tekur undir með þeim sem telja að það vanti mögulega kennara en hún telur á því lausn. „Frábært, og örugglega hægt nota tæknina ef það eru ekki nógu margir kennarar,“ segir Erna.
Ása nokkur er líka hrifin af hugmyndinni og bendir jafnframt á annan nærtækan möguleika nærri Hagaskóla. „Neskirkja er líka nærtæk og búið að biðja presta að bjóða aðstöðu,“ segir Ása.