- Auglýsing -
Framsóknarflokkurinn og Flokkur fólksins eru á fleygiferð ef marka má fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Vinstri grænir virðast stefna í að verða fyrir miklu áfalli. Þá eru Sósíalistar að uppskera langt undir væntingum.
Kannanir hafa bent til þess að Framsóknarflokkurinn sé á miklu flugi og það virðist vera komið á daginn. Gangi þetta eftir þá er líf óbreyttrar ríkisstjórnar í mikilli hættu þar sem VG mun ekki geta haldið áfram í stjórn ef flokkurinn lendir í fylgishruni.