Fjöldi manns fékk áskorun um slagsmál víðáttuölvuðum manni sem vildi slást við allt og alla. Lögreglan mætti á staðinn en maðurinn reyndist ekki viðræðuhæfur. Hann sefur nú úr sér í gúmmídýnu í fangaklefa lögreglunnar. Með morgninum verður honum gerð grein fyrir atburðum næturinnar.
Á Seltjarnarmesi kom upp öllu alvarlega því tveir urðu fyrir líkamsárás. Þeir komu sér sjálfir á slysadeild. Lögregla kom þangað og ræddi við þá þar. Árásarmannsins er leitað. Enn ein líkamsárásin átti sér stað í austurborginni. Þá gómaði lögreglan mann með hnúajárn á sér miðborginni. Tekin var skýrsla af honum.
Fjöldi ökumanna var stöðvaður vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið, grunaður um ölvunarakstur og jafnvel réttindalausir í ofanálag. Einn var vopnaður. Þeir voru sendir í sýnatöku.
Loks var, samkvæmt dagbók lögreglunnar, maður í annarlegu ástandi gripinn við rúðubrot.
Alls voru 103 mál skráð hjá lögreglu í nótt. Uppistaðan var kvartanir vegna hávaða fólks sem hélt vöku fyrir reglusömum sakleysingjum.