Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn greindi frá því á upplýsingafundi almannavarna nú síðdegis að hann hefði gert óvísindalega könnun á dögunum. Hann segir niðurstöðuna vera þá að fólk er greinilega farið að slaka á sóttvörnum. Hann skorar á fólk að halda áfram að hugsa um sóttvarnir.
Víðir greindi frá því að hann hefði séð að í einhverjum fyrirtækjum sem bjóða upp á þjónustu af einhverju tagi var búið að ýmist fjarlægja sprittbrúsa eða að þeir voru tómir.
Víðir nýtti tækifærið á upplýsingafundinum og minnti almenning á að halda áfram að passa upp á sóttvarnir. Hann beindi orðum sínum sérstaklega að þeim sem bjóða upp á þjónustu og reka verslanir, hann bað það fólk um að tryggja að viðskiptavinir þeirra hefðu alltaf aðgang að handspritti.