Á vef Veðurstofunnar segir að gul viðvörun taki gildi klukkan 22 í kvöld á Suðurlandi og Suðausturlandi
Mun viðvörunin gilda til klukkan 11 í fyrramálið; segir ennfremur á vef Veðurstofunnar að búast megi við snjókomu eða skafrenningi með slæmu skyggni sem og versnandi akstursskilyrðum.
Á Suðurlandi má búast við austanátt, 18-25 m/s undir Eyjafjöllum með ansi snörpum vindhviðum; hægari vindur verður annars staðar á áðurnefndu svæði.
Þá verður á Suðausturlandi austanátt, 15-23 m/s með mjög snörpum vindhviðum; hvassast verður vestan Öræfa, eins og segir á vef Veðurstofunnar.