Vigdis Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokkisins, er komin á flótta út úr pólitíkinni vegna þess að ekki er tekið mark á henni innan borgarstjórnar. Þetta mátti lesa út úr tilkynningu hennar þegar hún lýsti yfir því að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér til framboðs fyrir Miðflokkinn í Reykjavík að nýju í vor.
Með brotthvarfi hennar hverfur af vígvelli Miðflokksins einn öflugasti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Líklegasta skýringin á brotthvarfi Vigdísar er einfaldlega sú að hún hafi séð fram á fylgishrun í vor líkt og gerðist hjá flokknum á landsvísu. Nokkur umræða hefur verið uppi um að Vigdís hyggði á liðhlaup úr flokksbrotinu og vildi komast í sitt gamla hólf í Framsóknarflokknum en hún hefur fram að þessu þvertekið fyrir það og óvíst er með áhugann hjá Framsókn …