„Ástin kemur þegar hún kemur. Við stjórnum því ekki sjálf,“ segir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sem hefur fulla trú á ástinni þrátt fyrir sambandsslit hennar og Garðars Kjartanssonar veitingamanns.
Morgunblaðið auglýsti Vigdísi með þeim hætti nýverið að hún væri á lausu. Aðspurð hvernig henni hafi liðið við auglýsinguna hafði hún þetta að segja:
„Veistu, mér er eiginlega algjörlega slétt sama. Þeir sem eru í stjórnmálum hafa ekkert prívat líf. Það hefur iðulega ratað í fréttir þegar ég hef deitað menn og svo þegar ég er á lausu kemur það líka í fréttir. Ég hlýt að vera bara svona rosalega áhugaverð persóna, það getur ekki annað verið,“ segir Vigdís sem gefur reyndar ekki mikið fyrir ferskleika frétta hjá Morgunblaðinu:
„Þetta eru eld, eld, eld, eldgamlar fréttir. Ætli það sé ekki að verða ár síðan ég hætti að hitta þennan mann sem um ræðir.