Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að eignir Samherja verði frystar á meðan á rannsókn á viðskiptum Samherja í Namibíu stendur. Þetta segir hún í færslu á Facebook.
„Um er að ræða rannsókn á mögulegu mútubroti, peningaþvætti og skattalagabrotum. Hér er ekki um einhverja sjoppu að ræða heldur milljarðafyrirtæki með umtalsverð umsvif í fjölda ríkja og skattaskjólssvæðum,“ skrifar hún meðal annars.
Helga setur þá rannsókn á meintum skattalagabrotum hljómsveitarinnar Sigurrós í samhengi við mál Samherja. „Minni á að eignir dægurlagahljómsveitarinnar Sigurrósar voru frystar vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum hljómsveitarmeðlima sem varðaði nokkra tugi/hundruð milljóna.“
Helga bætir við að henni þyki ekkert annað koma til greina en að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja, stígi til hliðar.
Færslu Helgu má sjá hér fyrir neðan.