Breska leikkonan Helen Mirren vill fjárframlög frá fylgjendum sínum í skiptum fyrir ljósmynd sem hún tók af sér uppi í rúmi snemma morguns og birti á Instagram.
Mirren hvetur fólk til að leggja sitt af mörkum og taka þátt í fjáröflun þar sem safnað er fyrir gjörgæsludeildir sjúkrahúsa Bretlands þar sem álagið er mikið þessa dagana vegna útbreiðslu COVID-19.
Þegar þetta er skrifað er upphæð söfnunarinnar komin upp í tæplega 50 þúsund pund.
Á söfnunarsíðunni segir að ágóðinn muni m.a. fara í að aðstoða starfsfólk á gjörgæsludeildum sjúkrahúsa Bretlands og í fjármögnun frekar rannsókna á COVID-19.