Rannsóknir á vegum Matís eru margvíslegar en tengjast þó flestar matvælum. Nú óskar Matís eftir þátttakendum sem áhuga hafa á að efla matvælarannsóknir á Íslandi.
Þátttaka í slíkum rannsóknum er til dæmis í formi rýnihópavinnu, þar sem rætt er um matartengd málefni eða vörur sem eru í þróun. Einnig fer hún fram með könnunum þar sem þátttakendur meta vörur heima.
Viðhorfskönnunum um matartengd málefni á netinu er að sama skapi einn liður í rannsóknunum og svo eru það kannanir eða mat á vöru í húsnæði Matís að Vínlandsleið 12.
Þetta er spennandi tækifæri til að láta ljós sitt skína og segja álit sitt á ýmsu matartengdu. Fyrir hverja rannsókn verða þátttakendur valdir af póstlista og þeim boðið að taka þátt. Þátttakendur í stærri verkefnum fá umbun í formi smárra gjafa, gjafabréfs, eða þátttöku í happdrætti.
Vilt þú vera á neytendalistanum? Þú getur skráð þig hér.