Vinnustöðvun vefblaðamanna og ljósmyndara á Vísi, Rúv, Morgunblaðinu og Fréttablaðinu hefur verið frestað. Þetta kemur fram á Vísi.is.
Þar segir að ákveðið hafi verið að fresta fyrirhugaðri 12 tíma verkfallsaðgerð sem átti að hefjast klukkan 10:00 í dag.
Þetta hefði orðið þriðja vinnustöðvunin í verkfallsaðgerðum blaðamanna Blaðamannafélags Íslands.
Kjaraviðræður BÍ og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttsemjara stóð yfir í um sjö klukkustundir í gær.
Hjálmar staðfesti í samtali við Mannlíf að verkfallinu í dag hafi verið aflýst.
„Blaðamannafélag Íslands, að höfðu samráði við Samtök atvinnulífsins, hefur aflýst boðuðum verkfallsaðgerðum sem hefjast áttu kl. 10 í dag og standa til kl. 22, sbr. tilkynningu Blaðamannafélags Íslands þann 31. október 2019. Áður boðaðar verkfallsaðgerðir sem hefjast eiga þann 28. nóvember 2019 kl. 10 standa óbreyttar.
Nánari upplýsingar síðar,“ segir í tilkynningu frá Blaðamannafélagi Íslands.