- Auglýsing -
Leikkonan Jennifer Aniston er loksins mætt á Instagram en hún deildi fyrstu myndinni í dag og á tveimur klukkustundum er hún komin með 178 þúsund fylgjendur.
Fyrsta myndin er ekkert slor, Aniston og meðleikarar hennar fimm úr sjónvarpsþáttunum ástsælu Friends. Myndin var tekin síðustu helgi í matarboði hjá Courtney Cox, en þetta var í fyrsta sinn í langan tíma sem sexmenningarnir hittust allir saman.
Brasilíska vefsíðan skilur eftir athugasemd: „Pásan er loksins búin“, og vísar þar til þekkt atviks í ástarsögu Rachel og Ross í þáttunum Friends.