Bifreið var stöðvuð í Grafarvogi á sjötta tímanum í gærkvöldi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og nytjastuld ökutækis. Hann beitti ofbeldi gegn lögreglumanni, hótunum og fór ekki að fyrirmælum lögreglu. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Sex aðrir ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum í gærkvöldi og nótt. Þá voru þrír þeirra grunaðir um akstur án réttinda. Einn þeirra sviptur ökuréttindum, annar hefur ekki endurnýjað ökuréttindin og sá þriðji hefur aldrei öðlast ökuréttindi . Þá var sá síðast nefndi einnig grunaður um vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna.
Afskipti voru höfð af manni í kyrrstæðri bifreið í nótt vegna vörslu fíkniefna. Áður hafði verið tilkynnt um mögulegan ölvunarakstur. Maður í annarlegu ástandi var handtekinn við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði í nótt. Hann hafði verði að ráðast á fólk. Maðurinn var vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Kona í annarlegu ástandi var handtekin við Ingólfstorg í gærkvöldi þar sem hún hafði verið að áreita fólk. Konan var vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Þá var maður í annarlegu ástandi handtekinn í miðbænum þar sem hann var að valda ónæði. Maðurinn var vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Þrír menn voru handteknir í hverfi 105 á níunda tímanum í gærkvöldi. Mennirnir eru grunaðir um þjófnað á reiðhjólum og voru þeir vistaðir fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
75 mál voru skráð milli 17:00 – 05:00 í dagbók lögreglu. Þá voru tólf aðilar vistaðir í fangageymslu lögreglu.