Innbrotsþjófur ruddi sér leið inn á heimili í austurborginni. Lögreglan var kölluð til og í ljós kom að talsverðum verðmætum hafði verið stolið. Ekki hefur verið upplýst hver var á ferð en máliuð er í rannsókn. Áríðandi er talið að fólk nýti sért nágrannavörslu á tímum þegar margir eru fjarverandi í sumarfrímum. Þá er upplagt að láta nágranna vita um ferðir sínar.
Einn eitt rafskútuslysið varð í miðborginni þegar maður féll af hjóli sínu. Hann var fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar en reyndist vera með minniháttar meiðsli.
Vítavert aksturlag ökumanns í austurborginni varð til þess að lögregla var kölluð til. Lögregla kom á vettvang og hafði uppi á bifreiðinni. Bílstjórinn reyndist vera í annarlegu ástandi og var hann handtekinn. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist hann hafa verið sviptur ökuréttindum sínum. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð til sýnatöku og skýrslutöku. Hans bíður himinhá sekt. Annar ökumaður var handtekinn á svipuðum slóðum, grunaður um að vera undir áhrifum vímuefna. Hann var færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli.