Veðurstofa Íslands spáði hvassviðri og leiðinda veðri á stórum hluta landsins í dag og virðist sú spá vera ganga eftir. Gular viðvaranir eru í gildi víða um land og hafa margar leiðir Strætó legið niðri á suðvesturhorni landsins vegna veðurs.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsbjörg, hafa mörg útköll borist björgunarsveitinni í dag vegna óveðursins. Þakplötur, þakklæðning og lausamunir fóru af stað í Borgarnesi skömmu fyrir hádegi og var það rétt byrjunin. Um tólfleytið var víða á suðvesturhorni landsins óskað eftir aðstoð björgunarsveitarinnar, í öllum tilvikum hefur um foktjón verið að ræða vegna óveðursins.
Í Grindavík tók gámur við höfnina á flug, vinnuskúr í Mosfellsbæ fauk á hliðina og þá hafa garðskúrar, ruslatunnuskýli og fleiri lausamunir fokið af stað.
Landsbjörg biður fólk um að fara varlega á meðan mesta veðrið gengur yfir og vera ekki á ferðinni að óþörfu.