Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skrifaði í dag undir samstarfsyfirlýsingu ásamt mennta- og barnamálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“ – en það miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst fatlaðra barna og ungmenna.
Segir Willum að „markmiðið er að öll börn og ungmenni eigi möguleika á að taka þátt í íþróttum í samræmi við óskir þeirra og þarfir.“
Heilbrigðisráðherra segir að „áhersla er á að fötluðum börnum og ungmennum verði til að mynda gert kleift að stunda íþróttir með ófötluðum börnum kjósi þau svo.“
Willum segir verkefnið vera lið í að ná þeim markmiðum samnings Sameinuðu þjóðanna um „réttindi fatlaðs fólks sem varða þátttöku fatlaðs fólks í íþróttastarfi.“