Ríkisstjórn Frakklands neyddist til að gefa út yfirlýsingu á vef heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins um að kókaín gagnaðist ekki í baráttunni gegn COVID-19 kórónaveirunni. Þetta var gert þar sem falsfréttir höfðu gengið á samfélagsmiðlum um að hvíta duftið gagnaðist vel í baráttu við veiruna.
Nokkuð mikið hefur borið á því að ýmsar rangar upplýsingar varðandi faraldurinn og veiruna séu í gangi á Netinu. Franska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytið skrifaði á Twitter: „Nei, kókaín verndar fólk ekki gegn COVID-19. Þetta er ávanabindandi eiturlyf sem getur haft alvarlegar afleiðingar á heilsu fólks.“