1
Innlent

Græna gímaldið dregur dilk á eftir sér

2
Innlent

Hekla innkallar lífshættulega Skoda-bíla

3
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

4
Heimur

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá

5
Fólk

Selja draumaeign á höfuðborgarsvæðinu með ró og næði í fyrirrúmi

6
Menning

Guðmundur snýr aftur í Breiðholtið

7
Innlent

Þorgrímur Þráins fær milljón

8
Pólitík

„Hættið að fela börnum að teikna klámmyndir“

9
Minning

Eggert Ólafur Ásgeirsson er fallinn frá

10
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

Til baka

Samtal sem á erindi við allt samfélagið

Vilja breyta geðheilbrigðisþjónustu: „Hvað ef fyrsta skrefið væri einfaldlega að hlusta?“

Auður Axelsdóttir
Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri HugaraflsÍsland hýsir alþjóðlegu Open Dialogue ráðstefnuna í fyrsta sinn
Mynd: Open Dialogue

Dagana 26. til 30. ágúst næstkomandi verður Ísland í fyrsta sinn gestgjafi alþjóðlegu Open Dialogue ráðstefnunnar, sem nú er haldin í 30. sinn.

Ráðstefnan fer fram í Hveragerði og mun hreyfa við hefðbundnum áherslum í geðheilbrigðisþjónustu með því að beina sjónum að mikilvægi mannlegra tengsla, samvinnu og hlustunar. Búist er við um 100 þátttakendum frá fjölmörgum löndum.

Hugmyndafræði Open Dialogue (Opna samtalið) leggur áherslu á að fólk sem glímir við geðrænar áskoranir fái virka rödd í eigin þjónustu. Í stað þess að ákvarðanir séu teknar án samráðs, er fjölskyldu og tengslaneti boðið að borðinu til að skapa sameiginlegan skilning og byggja upp þjónustu sem einkennist af von og virðingu.

Á meðal framsögumanna á ráðstefnunni eru virtir innlendir og erlendir sérfræðingar:

  • Jaakko Seikkula, einn af helstu frumkvöðlum Open Dialogue nálgunarinnar.
  • Robert Whitaker, rithöfundur og fyrirlesari sem haft hefur mikil áhrif á alþjóðlega umræðu um geðheilbrigðismál.
  • Maria Ingström, læknir sem mun deila eigin reynslu af geðrofi og bata.

Sérstakur opinn dagur fyrir almenning

Skipuleggjendur leggja ríka áherslu á að málaflokkurinn varði allt samfélagið. Ráðstefnan er því opin jafnt fagfólki, notendum þjónustunnar, aðstandendum og nemendum.

Föstudaginn 28. ágúst verður boðið upp á sérstakan opinn dag þar sem almenningi gefst kostur á að taka þátt í umræðunni án þess að sækja ráðstefnuna í heild sinni.

Auður Axelsdóttir, framkvæmdastjóri Hugarafls, segir tækifærið mikilvægt fyrir íslenskt samfélag: „Við viljum skapa umræðu sem byggir á von. Von um að hægt sé að þróa geðheilbrigðisþjónustu áfram með meiri hlustun, meiri samvinnu og meiri virðingu fyrir reynslu fólks. Þetta er samtal sem við teljum að allt samfélagið eigi að taka þátt í.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Bananar innkalla epli
Innlent

Bananar innkalla epli

Umræddar vörur voru á boðstólum í verslunum Bónuss
Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél
Myndband
Heimur

Kona fær nálgunarbann samþykkt eftir ofbeldi sem sást á eftirlitsmyndavél

Osló bannar snjallgleraugu í skólum
Heimur

Osló bannar snjallgleraugu í skólum

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann
Innlent

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

Rektorar svara ásökunum Hannesar
Innlent

Rektorar svara ásökunum Hannesar

Hélt að tveggja ára sonur sinn væri Satan og myrti hann
Heimur

Hélt að tveggja ára sonur sinn væri Satan og myrti hann

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi
Myndir
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá
Heimur

Áhrifavaldurinn Einar Méndez fallinn frá

Innlent

Bananar innkalla epli
Innlent

Bananar innkalla epli

Umræddar vörur voru á boðstólum í verslunum Bónuss
Harðar umræður um gervigreind á íslenskri snyrtistofu
Myndir
Innlent

Harðar umræður um gervigreind á íslenskri snyrtistofu

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann
Innlent

Stal bíl við Skeifuna og setti röng skráningarmerki á hann

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco
Innlent

Eygló lenti í leiðinlegu atviki með hráefni úr Costco

Rektorar svara ásökunum Hannesar
Innlent

Rektorar svara ásökunum Hannesar

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi
Myndir
Innlent

Íslenski barinn Nostalgía tilkynnir stórtíðindi

Loka auglýsingu