Leikkonan Sandra Bullock er mikill dýravinur. Hún gaf 12,4 milljónir til samtaka sem vinna að því að hjálpa dýrum frá skógareldum í Kaliforníu.
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir vegna skógareldanna sem geisa í Kaliforníu en eldurinn hefur valdið gríðarlegu tjóni og dregið 42 til dauða. Margir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldsins og sumir hafa misst allt sitt í eldinum. Söngkonan og dýravinurinn Miley Cyrus er ein þeirra sem hefur misst húsið sitt í eldinum. Hún tjáði sig um málið á Twitter og sagði mestu máli skipta að gæludýrin hennar hefðu sloppið ómeidd.
Leikkonan Sandra Bullock er einnig mikill dýravinur en hún hefur lagt sitt af mörkum til að hjálpa dýrum á svæðinu. Hún styrkti mannúðarsamtök Ventura-sýlsu um upphæð sem nemur um 12,4 milljónum króna. Þau samtök vinna nú að því að hjálpa dýrunum sem eru á svæðinu þar sem skógareldarnir geisa. Samtökin greindu frá góðverki Söndru á Facebook-síðu sinni og biðluðu til annara að hjálpa líka. Þetta kemur fram á vef CNN.