Föstudagur 29. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Ragnar Þór sakar Samtök atvinnulífsins um sturlun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Formaður VR hjólar í Samtök atvinnulífsins.

Framganga Samtaka atvinnulífsins opinberar ekki aðeins sturlað viðhorf, heldur eru samtökin með fjarstæðukenndan áróður. Þessu lýsir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, blákalt yfir í ítarlegri færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Þar birtir Ragnar Þór þær tölur sem hafa verið uppi á borðum og segir hvað í þeim felist að hans mati. Til að mynda segir Ragnar Þór að fullyrðingar um að kröfur verkalýðshreyfingarinnar feli í sér 60 til 85% launahækkanir séu afar langsóttar. Tilboð SA þýði aftur á móti í raun kjararýrnum. Sem dæmi sé tilboð upp á 2,5% launahækkun í raun launalækkun í 3,6% verðbólgu.

Hér er fyrir neðan má lesa færslu Ragnars Þórs:

Tilboð SA til félagsmanna VR.
15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000 kr.!!
Sérstök 5.000 kr. Hækkun á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 kr.
Verðbólguspá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6%.
Á meðan lýðskrumarar og aðrir lobbíistar sérhagsmuna tala um nútíma hagfræði, kulnun í hagkerfinu eða skrumskæla kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar eins og kom fram í málflutningi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar staðreyndir.
Tiilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun!
2,5% hækkun launa í 3,6% verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum!
15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborgað!
Leigufélögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þúsunda og dæmi er um einstæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigufélaginu þar sem tilkynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samningi. SA býður þessum félagsmanni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mismunurinn er 11.025kr. sem uppá vantar.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 82%.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hækkuðu um 45% og yfir.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 15.000 kr. á meðan laun framkvæmdastjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama tilboði.
Stjórnvöld og SA tala um kólnun í hagkerfinu, ábyrgð og svigrúm á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækka um 1.700.000 kr. Á mánuði, eða 82%, og þykir sú hækkun hófleg í núverandi árferði að mati stjórnenda bankans.
Í kröfugerð VR er sama krónutöluhækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mánuði á þremur árum.
Fullyrðingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -