Fimmtudagur 28. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

80% félagsmanna hlynntir verkfalli

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í könnun sem Gallup framkvæmdi nýverið meðal félagsmanna Eflingar-stéttarfélags kom í ljós að 80% félagsmanna eru hlynntir verkfalli

„Kom í ljós afdráttarlaus stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80% félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna,“ segir í grein sem birt er á vef ASÍ.

Þar kemur fram að samkvæmt niðurstöðum könnunar Gallup hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.

„Þá leiðir könnunin í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. En þær aukast um 16% á milli mælinga úr 47% sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63% í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni,“ segir einnig.

Þess má geta að könnunin var lögð fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19.-26. janúar. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -