Jón Kaldal skrifar um sjókvíaeldi á laxi og áhrifin í sinn nýjasta pistil.
„Á sama tíma láta þeir hins vegar alveg vera að minnast á að sjókvíaeldið er ekki aðeins veruleg ógn við umhverfi og lífríki Íslands heldur er velferð eldisdýranna ömurleg í þessum iðnaði,“ skrifar hann meðal annars.
Hvað dýravelferð varðar skrifar Jón: „Í ársbyrjun 2018 sagði Per Sandberg, sjávarútvegsráðherra Noregs, það vera brýnasta verkefni norsks laxeldis að stemma stigu við gríðarlegum laxadauða í iðnaðinum. Árið áður höfðu 53 milljónir fiska drepist áður en hægt var að koma þeim í vinnslu.
Sama magn hafði drepist 2016 og ráðherranum var ofboðið. Sjókvíaeldisfyritækin lofuðu bót og betrun. Í febrúar á þessu ári sendi Norska dýralæknastofnunin frá sér svarta skýrslu um stöðu heilbrigðismála í fiskeldi þar sem kemur fram að ekkert gengur að ná tökum á þessum gríðarlegu fiskidauða. Góðu heilli fer sá hópur mjög hratt vaxandi sem gerir kröfu um að matvara sé framleidd í sem mestri sátt við umhverfi sitt og með mannúðlegum hætti. Sjókvíaeldi á laxi á stórum skala er harðneskjulegur iðnaðarbúskapur.“
Jón endar pistil sinn á að hvetja fólk til að hafa þessar upplýsingar bak við eyrað í næstu búðarferð.
Pistil Jóns má lesa í heild sinni hérna.