Hér segir frá chíleska söngvaskáldinu Violetu Parra sem var fjölhæfur listamaður og magnaður persónuleiki. Það er kannski lýsandi fyrir þessa ástríðafullu konu að aðeins nokkrir mánuðir líðu frá því að hún gaf út hinn fegursta þakkaróð til lífsins og þar til hún framdi sjálfsvíg í febrúar 1967. Þeir Jón Sigurður og Rucio spyrja að sjálfsögðu hvers vegna og rýna á eftir svari í bréf sem hún skildi eftir handa bróður sínum. Hann var skáld, rétt einsog hún, og hét Nicanor og segja þeir félagar furðusögur af honum því hann var ólíkindatól mikið og hafði gaman af því að hrista uppí samfélagi sínu. Violeta er öllum kunn sem eitthvað hafa hlýtt á tónlist frá Suður Ameríku en umræddur þakkaróður hennar, Gracias a la vida eða Þökk sé þessu lífi, hefur hljómað útum allan heim. Til dæmis hér heima á Íslandi í fluttningi Kristínar Á. Ólafsdóttur en ljóðið íslenskaði Þórarinn Eldjárn.