Nýtt tölublað Húsa og híbýla kemur í verslanir á morgun. Forsíðuna prýðir glæsilegt 370 fermtera hús á Balí, það er í eigu íslensk listamanns. Hönnun hússins er innblásin af hljóðbylgju og á sá sem dvelur í húsinu að fá þá tilfinningu að vera staðsettur inni í hljóðfæri. Sjón er sögu ríkari!
Í blaðinu er einnig að finna „fyrir og eftir“ myndir af heimili Evu Petersen í Hlíðunum sem sigraði í Byko-leik Húsa og híbýla síðastliðið sumar.
Við kíkjum svo í heimsókn til Ásdísar Rósu sem býr í íbúð með sterkum karakakter. Húsráðendur hafa verið að hanna húsgögn sem sniðin eru að rýminu.
Við heimsóttum einnig grafískan hönnuð sem á létt og látlaust heimili í Vesturbænum.
Sirrý Arnardóttir fer yfir og sýnir okkur sína uppáhaldshluti en hún býr í snotru húsi í Skerjafirðinu.

Póstkortið sem fylgir með blaðinu er eftir Örnu Ingu, upprennandi listakonu, en hún brennur fyrir baráttumálum nútímasamfélags.
Þetta og miklu meira í 6. tölublaði Húsa og híbýla.
Tryggðu þér áskrift að Hús og híbýli í vefverslun
