Christian Thulstrup Lauesen, einn stofnanda danska vörumerkisins Ro, var staddur hér á landi í fyrra til þess að kynna nýjungar fyrirtækisins sem var stofnað árið 2013 og hefur átt mikilli velgengni að fagna síðan.
Hugmyndafræði Ro gengur fyrst og fremst út á það að staldra við og njóta augnabliksins, líkt og nafnið gefur til kynna. Áherslan er á gæði og handverk og eru vörur fyrirtækisins einfaldar í formi og lögun og falla vel að umhverfi sínu.
Umhverfissjónarmið koma skýrt fram í hugmyndafræði Ro og stendur fyrirtækið fyrir heiðarlegri framleiðslu frá upphafi til enda. Lagt er upp með að efniviðurinn sem hönnuðir notast við standist tímans tönn og að vörurnar hafi margskonar notagildi. Jafnframt á að vera auðvelt að endurvinna það hráefni sem notast er við.
Gríðarleg vinna er lögð í efnisvalið, rannsóknir gerðar og ýmsar prófanir svo vörurnar standist strangar gæðakröfur fyrirtækisins. Fagurfræði og notagildi tvinnast saman á skemmtilegan hátt og má segja að vörurnar séu í senn listmunir og nytjahlutir. Línan samanstendur af glervösum, kertastjökum og -luktum, viðarbrettum, ofnheldum leirskálum og öðrum borðbúnaði.