- Auglýsing -
Það vakti mikla athygli í gær þegar Kjarvalshúsið á Sæbraut 1 á Seltjarnarnesi var sett á sölu. Húsið er afar glæsilegt og er heilir 442 fermetrar að stærð.
Húsið var byggt árið 1969 og teiknað af af Þorvaldi S. Þorvaldssyni. Húsið var hugsað sem gjöf fyrir listmálarann Jóhannes S. Kjarval fyrir ævistarf hans.
Óskað er eftir tilboðum í húsið en fasteignamatið er tæpar 178,5 milljónir.
Fyrir þau ykkar sem eruð heit fyrir húsinu og eru að íhugað að leggja inn tilboð þá kemur hér samantekt yfir fleiri hús af stærri gerðinni sem eru á sölu þessa stundina.