- Auglýsing -
Hashira nefnist ný lína Norm Architects fyrir MENU og er hún innblásin af aldagamalli japanskri hefð í pappírsgerð.
Ljósin hafa yfir sér afslappað yfirbragð og er birtan frá þeim einstaklega notaleg. Formin eru einföld og laus við alla tilgerð og ná vel að fanga þá hugmyndafræði sem japönsk hönnun stendur fyrir.
Línan inniheldur loftljós, gólf- og borðlampa og er efnisvalið náttúrulegt. Skermarnir eru gerðir úr hör og fætur gólf- og borðlampanna eru úr aski.