- Auglýsing -
Ilmur vekur oft upp sterkar minningar, hér er ein leið til að framkalla undursamlegan jólailm.
Setjið vatn í pott með 3 msk. af negulnöglum, 2 kanilstöngum og 2 mandarínum sem skornar hafa verið í tvo hluta. Látið blönduna malla í u.þ.b. klukkustund og húsið, sérstaklega eldhúsið, mun anga af jólum.
Setjið síðan lokið á pottinn og hitið upp annað slagið til að fá ilminn aftur. Hægt er að nota blönduna nokkrum
sinnum en stundum þarf að bæta við vatni.