- Auglýsing -
Pop Up-verzlun er tíu ára og heldur sinn árlega og vinsæla jólamarkað hönnuða og myndlistamanna í porti Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 14. desember frá kl. 11-17.
Pop Up-verzlun er milliliðalaus verslun frá hönnuði til neytandans. Ýmsir hönnuðir og listamenn koma saman á markaðnum þar sem ógrynni af vönduðum vörum og listaverkum af ýmsum toga verður til sölu.
Því er tilvalið að styðja íslenska hönnuði og listamenn og kaupa fallegar gjafir í jólapakkann. Á Instagram-síðu Pop Up-verzlunar má sjá hvaða aðilar taka þátt í markaðnum.