- Auglýsing -
Nú þegar sólin er farin að skína hærra á himni er tilvalið að njóta kaffibollans utandyra. Svæðið fyrir utan listasafnið á Kjarvalsstöðum er algjör sólarpottur og það er ekkert betra en að fá sér kaffi og með því í sólarylnum og nýta tækifærið til að drekka í sig menningu og listir.
Á móti safninu er skemmtilegur leikvöllur fyrir þau yngstu og góð grillaðstaða, en einnig er frisbígolfvöllur á Klambratúni fyrir þá sem elska frisbídiskastuð.