Nýtt æði hefur runnið á landann – og um Skandinavíu alla, það eru hin svokölluðu snúningskerti. Hér áður voru snúningskerti mikið notuð og komu þau í hinum ýmsu útfærslum, ýmist úr gulli og silfri eða öðrum hefðbundnum litum.
Nú hafa slík kerti verið að koma aftur upp á yfirborðið og það skemmtilega við það er að fólk prófar sig áfram sjálft og setur sitt eigið handbragð á kertin.
Þú einfaldlega leggur kerti í 45 gráðu heitt vatn í 10-15 mínútur eða þar til það verður mjúkt, leggur það á bökunarpappír, mottu eða bretti og fletur það út allan hringinn. Því næst snýrðu kertinu eftir því hvernig þú vilt hafa það og að endingu er það kælt.
Einnig er hægt að flétta kertin og þá er sama aðferð notuð til að byrja með. Eftir að kertið er flatt út er það skorið niður í jafna renninga með dúkahníf, en gott er að nota reglustiku. Gæta þarf þess að þráðurinn haldi sér í miðjunni. Svo er fléttað og kælt og þú ert komin/n með einstakt safn ólíkra kerta.