- Auglýsing -
Vefverslun Krabbameinsfélagsins býður upp á fjölbreytt úrval af fallegum og nytsamlegum varningi. Það nýjasta eru veggspjöldin frá Havarí með skírskotun til texta hljómsveitarinnar Prins Póló; „Er of seint að fá sér kaffi núna?“ og „Líf ertu að grínast?“ en við sláum því föstu að það hafi margir spurt sig þeirrar spurningar á okkar fordæmalausu tímum.
Veggspjöldin eru litrík og húmorísk og frábær gjöf til vina og vandamanna. Ekki skemmir fyrir að þú styrkir gott málefni í leiðinni og styður við starfsemi Krabbameinsfélagsins.
Myndirnar eru í stærðinni 30 x 40 cm og passa í hefbundna Ikea-ramma.