Bang & Olufsen hafa sett á markað nýja kynslóð hátalara. Útlit hans er fallegt og fágað, bæði hvað varðar form og efnisval.

Beosound Balance er hannaður af Bang & Olufsen í samstarfi við Benjamin Hubert hjá Layer Design. Er hann sérstaklega hannaður fyrir þá sem hafa lítið gólfpláss og gerður til þess að standa uppi í hillu, upp við vegg eða á hliðarborði. Lögun hans veldur því að hljóðið dreifist jafnt um rýmið og þó hann standi upp við vegg endurkastast hljóðið ekki frá veggnum með tilheyrandi óþægindum. Hátalarinn gleypir í sig hljóðið aftur og dreifir því jafnt.

Stillingarnar eru margar og hægt er að stjórna hátalaranum í gegnum Bang & Olufsen appið í snjallsímanum og einnig styðst hann við Google Assistant. Fyrir þá sem vilja stjórna honum handvirkt, þá eru skynjarar á honum að ofanverðu. Skynjararnir nema þegar hlustandinn fjarlægist hátalarann og slekkur sjálfkrafa á lýsingunni. Að sama skapi nema þeir þegar hlustandinn nálgast.

Efnisvalið er fágað og endurspeglar skandinavískan mínimalisma. Neðri hlutinn gerður úr gegnheilli eik í sínum náttúrulega litatóni en einnig fæst hann í svörtu. Hljómgæðin þykja framúrskarandi góð og dreifist hljóðið jafnt í 360 gráður sem gefur frábæra tónlistarupplifun. Hægt er að samstilla hátalarann við aðra hátalara frá Bang&Olufsen. Stærð hans er 38×20 cm og vegur hann um 7,2 kg.
