- Auglýsing -
Ólafur Elíasson hefur hannað nýjar sólarsellur undir merkjum fyrirtækis síns Little Sun, í samstarfi við IKEA.
Sellurnar eru ætlaðar til heimilisnota og bera heitið Sammanlänkad (ísl. tengd) sem endurspeglar tengingu mannsins við sólina og þá orkuuppsprettu sem hún er.
Sólarsellurnar eru nokkurs konar orkustöðvar sem hægt er að nýta sem lampa eða hleðslustöðvar fyrir lítil raftæki. Með þessu vill Ólafur vekja fólk til umhugsunar um loftslagsmál, hvetja til samfélagslegrar ábyrgðar og sýna fram á hversu máttugt einstaklingsframlagið er í baráttunni.
Sammanlänkad kemur á markað 2021.