Hér skoðum við nokkur skemmtileg eldhús, öll ólík. Góður innblástur fyrir þau ykkar sem eru mögulega að fara að breyta til í eldhúsinu.
Smart og stækkanlegt hringborð úr IKEA, hentugt í minni rými.Heimasmíðuð borð eru farin að sjást í auknum mæli – einstakt og öðruvísi.Stílhreint frá HAY – poppað upp með mismunandi stólum.Gulir Sóleyjarstólar sem eru íslensk hönnun Valdimars Harðarsonar og komu fyrst fram árið 1984.Látlaust borð með sterkan karakter, setur svip á rýmið.Það þurfa ekki allir stólarnir við borðið að vera eins; þarna eru þrír gamlir fagrir tekkstólar og einn Dropi eftir Arne JacobsenSjöan eftir Arne Jacobsen er tímalaus hönnun við borðstofuborðið.Antík alla leið. Stólarnir og borðið eru yfir 100 ára gamlir dýrgripir frá París