Þriðjudagur 24. desember, 2024
0.8 C
Reykjavik

Sniðug ferðamál frá HAY

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Danska hönnunarhúsið HAY hefur kynnt nýjar vorvörur sem komnar eru á markað. Þar á meðal eru ný ferðamál sem hönnuð eru af arkitektinum George Sowden en hann hefur áður hannað vörur fyrir HAY líkt og kaffi- og tekatla, salt og piparkvarnir, flöskur og geymslubox.

 

Mynd / HAY

Sowden nam arkitektúr á áttunda áratugnum og fluttist að námi loknu til Mílanó og vann þar meðal annars með Ettore Sottsass og Olivetti. Á níunda áratugnum stofnaði hann svo Memphis Group ásamt öðrum. Einnig hefur hann unnið til margra verðlauna fyrir verk sín, þar á meðal hin eftirsóttu Compasso d’Oro-verðlaun. Í dag býr hann enn og starfar í Mílanó.

Ferðamálið er framleitt úr stáli, með plastloki og fæst í tveimur stærðum, 0,35 l og 0,5 l. Hægt er að velja um þrjá liti, grænan, gráan og bleikan. Ferðamálið heldur bæði heitu og köldu og því tilvalið í ferðalög sumarsins jafnt sem í vinnuna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -