- Auglýsing -
Danska hönnunarhúsið HAY hefur sent frá sér nýjar vörur í línu George Sowden sem inniheldur ýmis box og ferðamál svo eitthvað sé nefnt. Nýju vörurnar eru hraðsuðuketill og brauðrist.
Ketillinn kemur í fjórum mismunandi litum og brauðristin í þremur en litapallettan er sú
sama og Sowden hefur notast við áður í vöruhönnun sinni fyrir HAY.
Með nýju vörunum vill fyrirtækið fikra sig áfram í vöruþróun og er þetta í fyrsta skiptið sem það setur raftæki á markað.
Bæði ketillinn og brauðristin eru framleidd úr endingargóðu plasti
og ryðfríu stáli. Formin eru einföld og setja vörurnar fallegan svip á eldhúsið.