Suðræn og sumarleg stemmning einkennir nýjasta tölublað Húsa og híbýla.
Forsíðuna prýðir sögulegt hús í miðbæ Reykjavíkur sem nú er orðið að spennandi áfangastað þar sem suðræn stemning ræður ríkjum. Við hönnun staðarins var lögð sérstök áhersla á félagsleg gæði og einstaka stemningu.
Við lögðum land undir fót og kíktum í áhugaverð sumarhús. Má þar nefna glæsibústað Betta í Grímsnesinu og gróðursælan ævintýraheim á svipuðum slóðum ásamt stórfenglegri útsýnisperlu í Borgarfirði.
Í Hafnarfirði er sannkölluð sveit í borg en þar heimsóttum við hjón sem hafa gert upp fallegt timburhús með skemmtilega sögu.
Í blaðinu er einnig að finna einstaka upplifunarhönnun á nýjum Bistrobar í hjarta Reykjavíkur.
Þetta og margt fleira í 7. tölublaði Húsa og híbýla. Blaðið kemur til áskrifenda á morgun, miðvikudag, og í verslanir á fimmtudaginn.
Tryggðu þér áskrift að Hús og híbýli í vefverslun