- Auglýsing -
Orkumál eru arkitektum afar hugleikin og aukin krafa um að byggingar verði algerlega sjálfbærar hvað varðar orkunotkun, þannig að þær framleiði alla þá orku sjálfar sem þær nota og gott betur. Vind- og sólarorka hefur verið áberandi í umræðunni en nýting vatnsauðlinda er þáttur sem arkitektar horfa mjög til á næstu árum. Veitumál er víðast hvar verið að endurskoða og söfnun regnvatns þykir orðinn sjálfsagður hlutur. Í sumum stórborgum er farið að safna regnvatni í holræsakerfið sem síðan er dælt upp aftur til þess að vökva tré og plöntur í stað þess að það renni beint í fráveitukerfið.