Pétur H. Ármannsson, arkitekt, leiðir göngu og skoðar verk Guðjóns Samúelssonar, arkitekts og húsameistara, í Hafnarfirði.
Á fimmtudaginn mun Pétur H. Ármannsson, arkitekt, leiða göngu milli húsa sem Guðjón Samúelsson (1887-1950), arkitekt og húsameistari ríkisins, teiknaði í Hafnarfirði, auk þess að ræða hugmyndir Guðjóns um skipulag bæjarins. Pétur vinnur nú að bók um Guðjón samhliða sýningu sem sett verður upp í Hafnarborg í vetur.
Helstu byggingar Guðjóns eru fyrir löngu orðnar þjóðkunn tákn fyrir staði og stofnanir í íslensku samfélagi. Hann teiknaði til að mynda Hallgrímskirkju, aðalbyggingu Háskóla Íslands og Listasafn Íslands. Guðjón var frumkvöðull á mörgum sviðum og átti veigamikinn þátt í nútímavæðingu íslensks samfélags.
Gengið verður frá Hafnarborg á fimmtudaginn klukkan 20.00.