- Auglýsing -
Á dögunum kynnti danska hönnunarhúsið HAY ýmsar nýjungar sem munu rata í verslanir með vorinu. Þar á meðal eru munnblásnir vasar úr gleri sem eru litríkir og setja skemmtilegan svip á hvaða rými sem er.
Aðferðin sem notuð er við blásturinn er sérstök. Í grunninn eru vasarnir glærir en mörg lög af lituðu gleri eru svo sett ofan á sem gefa þeim þetta skemmtilega útlit. Þar sem hver og einn er handgerður má búast við því að engir tveir vasar verði nákvæmlega eins.
Hægt er að nota vasana bæði undir blóm en einnig geta þeir staðið einir og sér sem listaverk. Epal er söluaðili HAY á Íslandi.