Herbert hefur ekki setið með hendur í skauti og í dag er formlegur útgáfudagur nýs lags hans, „Call Your Name“. Að sögn Herberts er um að ræða „power-ballöðu“ sem hefur að geyma ástarsögu. Lagið er samvinnuverkefni Herberts Guðmundssonar, Halldórs Á. Björnssonar (Legend), Þórsteins Inga Einarssonar (Austurríki) og föður hans, Einars Th. Guðmundssonar.
Upptökur fóru fram hjá Halldóri Á. Björnssyni í Stúdíó Neptunus.
„Call Your Name“ er hljóðblandað í Austurríki af Luckas Hillebrand.
Herbert Guðmundsson – söngur, bakraddir og kassagítar
Halldór Á. Björnsson – hljómborð og producer
Pétur Valgarð Pétursson – rafgítar og kassagítar
Hálfdán Árnason – bassagítar
Gunnlaugur Briem – trommur
Bakraddir:
Íris Guðmundsdóttir
Íris Lind Verudóttir
Guðbjörg Elísa Hafsteinsdóttir
Hægt er að hlýða á Call Your Name hér.