Anna Kristjánsdóttir ætlar að kaupa fimm stjörnu hótel á Tenerife og breyta því í katta og hundahótel.
Í nýjust dagbókarfærslu Önnu Kristjánsdóttur, sem hún birtir á Facebook í gær, segir hún frá hjónum sem hún sótti á flugvöllinn á Tenerife, þar sem hún býr, í fyrradag. „Ég skrapp á flugvöllinn í gær að sækja íslensk hjón sem ætla að dvelja í Paradís næstu tvær vikurnar. Þetta voru ekki hvaða hjón sem helst, heldur Hannes og Heiðrún, hann fyrrum starfsmaður stjórnstöðvar rafmagns hjá Orkuveitunni, semsagt gamall vinnufélagi, hún starfsmaður hjá Rekstrarvörum til margra ára.“
Í gærkvöldi mættu hjónin svo á bar sem Anna kallar „Búkkann“ og voru að sögn hennar „fullklyfjuð með einhvern poka merktan Rekstrarvörum“. „Ég þefaði ofan í pokann og þóttist skynja harðfisk, en sá um leið ýmislegt sem á betur við íslenskar ungmeyjar á áttræðisaldri en íslenskur harðfiskur. Ég efa samt ekki að harðfiskinum verða gerð góð skil næstu dagana í næsta nágrenni, en sjálf mun ég njóta hinna sætindanna næstu dagana. Takk, Hannes og Heiðrún.“
Í seinni hluta dagbókarfærslunnar skrifar Anna um fyrirætlun sína um að kaupa katta og hundahótel á Tenerife, það er að segja, þegar hún vinnur í Eurojackpot.