Stjórnmálakonan og ráðherrann, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, er afmælisbarn dagsins. Hún fæddist 30. nóvember árið 1990 og fagnar því 31. árs afmæli sínu í dag.
Áslaug Arna gegndi áður embætti dómsmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn en í þeirri nýskipuðu hlaut hún stól vísinda-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra. Henni er gjarnan líst sem ábyrgum töffara í stjórnmálaunum sem taki verkefnunum alvarlega en sjálfri sér ekki of alvarlega.
Áslaug Arna er stundum sögð eldri en árin sem hún hefur lifað.
Sem dómsmálaráðherra gekk Áslaug Arna í gegnum ýmislegt síðustu árin, líkt og flestir í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sem þurft hefur að kljást við heimsfaraldur sem engan enda virðist ætla að taka.
Þegar mikið mæðir á ráðherra er gott að eiga góða aðstoðarmenn að og það veit Áslaug. Á Instagram síðu sinni birti hún nýverið eftirfarandi texta:
„Það er mikilvægt að vera umkringdur góðu og öflugu fólki. Það er ég svo sannarlega með þessa aðstoðarmenn. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt síðustu tvö árin. Þau eru bæði ráðagóð, klár, sniðug og ekki síst skemmtileg. Það er ekki sjálfgefið að hafa með sér svona gott teymi.“