- Auglýsing -
Margt var um manninn þegar Prentmet Oddi sló til afmælisfagnaðar, 8. september síðastliðinn, í tilefni 30 ára afmæli félagsins. Viðskiptavinum og velunnurum var boðið til glæsilegrar veislu í höfuðstöðvunum að Lynghálsi 1. Þar var boðið upp á veitingar og viðburði. Fram komu Bjössi trúbador, Ragnheiður Gröndal sem söng fyrir gesti við undirleik Guðmundar Péturssonar og Ari Jónsson, prentari og söngvari, lék ljúfa tóna.
Hér að neðan má skoða myndir úr veislunni.
Mannlíf óskar Prentmeti Odda innilega til hamingju með afmælið og þakkar samstarfið.