Jón Gnarr birti skemmtilega skoðun sína á stjórnmálum á Íslandi á Twitter.
Grínistinn og fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, segir að „kommar“ séu bara „kommar“ fyrir kosningar, eftir þær breytist þeir í Framsóknarmenn. Sjálfur bauð Jón Gnarr sig fram eins og heimsfrægt er orðið, fyrir Besta flokkinn í borgarstjórnarkosningum 2010 en hann vann og var borgarstjóri Reykjavíkur frá 2010-2014. Segja má að tilurð flokksins hafi verið vegna þreytu kjósenda á ríkjandi öflum þess tíma.
Færslu Jóns má lesa hér að neðan:
„kommar eru bara kommar fyrir kosningar. eftir kosningar verða þeir framsóknarmenn. eins er með frjálshyggjumenn sem brenna af frelsislosta fyrir kosningar. eftir kosningar breytast þeir í gelda íhaldsskarfa. hefur alltaf verið og mun alltaf verða“