Í yfirlýsingu frá Bandarísku kvikmyndaakademíunni kemur fram að Will Smith, leikari, hafi verið beðinn um að yfirgefa salinn eftir kinnhestinn sem hann gaf Chris Rock á Óskarsverðlaununum. Will hafi hinsvegar neitað að yfirgefa salinn.
„Hr. Smith var beðinn um að yfirgefa salinn en hann neitaði því. Við áttum okkur á því að við hefðum getað tekið betur á málinu þegar það gerðist,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni en hefur mikill fjöldi fólks mótmælt aðgerðarleysi akademíunnar eftir að Will sló Chris. Akademían hefur hafið rannsókn á málinu en stuttu eftir kinnhestinn fékk Will verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni King Richard.